C.10. Áhrif loftslagsbreytinga og sveitarfélög
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu - [email protected]
Ragnhildur Friðriksdóttir, Byggðastofnun - [email protected]
Fréttir
16.11.23 Vel sóttar vinnustofur um áhrif og afleiðingar loftslagsbreytinga á sveitarfélög
09.10.23 C.10 Fréttabréf - október 2023
19.04.23 Loftslagsþolin sveitarfélög til framtíðar: fyrsta aðlögunaraðgerð íslenskra stjórnvalda
16.04.23 Innslag um verkefnið í hádegisfréttum RÚV (byrjar á 10.mín)
07.11.22 Óskað eftir sveitarfélögum til þátttöku við að þróa aðlögunaraðgerðir
09.09.22 Samtalið um aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga er hafið
Verkefnið
Markmið: Að heildræn nálgun á aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga verði mótuð.
Stutt lýsing: Stigin verði fyrstu skrefin í mótun heildrænnar nálgunar á aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga í byggðum landsins. Tilviksrannsóknir verði framkvæmdar í litlum hópi ólíkra sveitarfélaga, t.d. hvað varðar fjarlægð frá sjó, þéttbýli, landslag, gróðurlendi og atvinnustarfsemi, með það að markmiði að þróa aðferðafræði sem nýtast muni á seinni stigum sem leiðarvísir fyrir íslensk sveitarfélög til frekari greininga á áhættu, tjónnæmi og aðlögunarþörf, sem og við uppsetningu aðlögunaráætlana. Horft verði til sambærilegra áhættugreininga erlendis frá, sér í lagi þeirra sem sveitarfélög hérlendis hafa tekið þátt í. Niðurstöðurnar verði einnig nýttar í norrænt samstarfsverkefni um aðlögun smærri samfélaga á norðurslóðum.
- Ábyrgð: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Veðurstofa Íslands, Skipulagsstofnun og Byggðastofnun.
- Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög, landshlutasamtök, ráðuneyti, stofnanir, háskólar og norræna ráðherranefndin.
- Tímabil: 2022–2024.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Stefna um aðlögun að loftslagsbreytingum, lands¬skipulagsstefna, aðlögunaráætlun (í vinnslu, mars 2022).
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 13.1–13.3.
- Tillaga að fjármögnun: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.