Endurskoðuð áætlun um framlagningu þingmála á vetrar- og vorþingi 2016
Í samræmi við 2. mgr. 47. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991 afhendir ríkisstjórn forseta Alþingis, við upphaf vetrarþings að loknu jólahléi, endurskoðaða áætlun um framlagningu stjórnarfrumvarpa á vetrar- og vorþingi ásamt áætluðum útbýtingardegi.
Á skránni eru m.a. þingmál sem lögð verða fram til kynningar. Fyrir neðan heiti frumvarps er áætlaður útbýtingardagur eða staða máls. Sjá nánari lýsingar á frumvörpum í þingmálaskrá sem lögð var fram síðastliðið haust.
Forsætisráðherra
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið nr. 34/1944 (notkun fánans við markaðssetningu á vöru og þjónustu)
Bíður 2. umræðu, 156. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2004, um þjóðgarðinn á Þingvöllum (refsiheimild vegna gjaldtöku)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 57/2011, um skil menningarverðmæta til annarra landa (innleiðing tilskipunar)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 80/2012, um menningarminjar (friðlýsing og aldursfriðun, stjórnsýsla)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (einföldun og samræming þagnarskylduákvæða)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum, nr. 140/2012 (innleiðing tilskipunar um endurnot upplýsinga)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísitölu byggingarkostnaðar, nr. 42/1987 (bætt aðferðafræði og mælitækni í útreikningi Hagstofu Íslands)
Ekki síðar en 31. mars. - Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis 2014
Útbýtt 18. desember 2015. - Skýrsla forsætisráðherra um málefni þjóðlendna
Ekki síðar en 31. mars. - Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga
Ekki síðar en 31. mars.
Viðbót - Frumvarp til laga um leyfisveitingar (fækkun leyfa, tilkynningar um starfsemi o.fl.)
Frumvarpinu er ætlað að fækka þeim tilvikum þar sem þörf er á leyfi stjórnvalda til að hefja atvinnustarfsemi, annaðhvort með þeim hætti að ekki þurfi leyfi eða að í stað leyfis komi tilkynning til stjórnvalda um að fyrirtæki hafi hafið starfsemi. Þá er markmiðið einnig að huga að skilyrðum í leyfum, gagnaöflun vegna leyfisumsókna og kostnaði við umsóknir. Er frumvarpið í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar við gerð síðustu kjarasamninga um ráðstafanir til að greiða fyrir gerð kjarasamninga.
Ekki síðar en 31. mars.
Félags- og húsnæðismálaráðherra
- Frumvarp til laga um húsnæðisbætur
Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 407. mál. - Frumvarp til laga um almennar íbúðir
Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 435. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 66/2003, um húsnæðissamvinnufélög (réttarstaða búseturéttarhafa, rekstur húsnæðissamvinnufélaga)
Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 370. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (réttarstaða leigjanda og leigusala)
Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 399. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar)
Ekki síðar en 27.janúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál (EES-reglur o.fl.)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál (Íbúðastofnun)
Sameinað máli nr. 8. Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál (húsnæðislán)
Sameinað máli nr. 7. Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum
Ekki síðar en 29. febrúar. - Tillaga til þingsályktunar um fjölskyldustefnu
Ekki síðar en 29. febrúar.
Viðbót - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007 (einföldun kerfisins, starfsgetumat, lífeyrisaldur, sveigjanleg starfslok o.fl.)
Ekki síðar en 31. mars.
Fjármála- og efnahagsráðherra
- Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2016
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2015
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til lokafjárlaga fyrir árið 2014
Til umfjöllunar í fjárlaganefnd. - Frumvarp til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt (skattívilnanir vegna hlutabréfakaupa)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (ýmsar breytingar)
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um opinber fjármál
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum (leyfilegur munur á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga)
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (viðurlagaákvæði)
Verður ekki lagt fram nú. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (fjárfestingarheimildir)
Áformað 15. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (viðbótartryggingavernd)
Verður ekki lagt fram nú. - Frumvarp til laga um opinber innkaup (heildarlög)
Áformað 15. febrúar. Hugsanlega tvö frumvörp. - Frumvarp til laga um ríkisaðstoð
Verður ekki lagt fram nú. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2006, um kjararáð, og fleiri lögum
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, lögum um Seðlabanka Íslands og lögum um neytendalán (erlend lán, varúðarreglur)
Til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd, 384. mál. - Frumvarp til laga um fasteignalán til neytenda
Til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd, 383. mál. - Frumvarp til laga um vátryggingastarfsemi (heildarlög)
Útbýtt 2. desember 2015, 396. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi (heildarlög)
Áformað 14. mars. - Frumvarp til laga um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum
Áformað 17. mars. - Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki
Áformað 15. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (útibú, samstæðueftirlit og uppljóstrun)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða
Áformað 14. mars. - Frumvarp til laga um afleiðuviðskipti
Áformað 17. mars. - Frumvarp til laga um skortsölu
Áformað 15. mars. - Frumvarp til laga um lánshæfismatsfyrirtæki (CRA)
Áformað 23. mars. - Frumvarp til laga um innstæðutryggingar
Verður ekki lagt fram nú. - Frumvarp til laga um slita- og skilameðferð fjármálafyrirtækja
Verður ekki lagt fram nú. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, og lögum nr. 2/1997, um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga
Áformað 15. mars. - Tillaga til þingsályktunar um meginskiptingu útgjalda fjárlaga næsta fjárlagaárs (ramma), svo og greinargerð um breytingar á tekjuöflun ríkisins
Verður ekki lagt fram nú.
Viðbót - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001, með síðari breytingum (stöðugleikaframlag)
Til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd, 420. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lífeyrissjóð bænda
Áformað 24. febrúar. - Frumvarp til laga vegna útboðs á aflandskrónum
Áformað 1. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skatta og gjöld á eldsneyti og ökutæki. Heildarendurskoðun
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (ýmsar breytingar)
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um fjármálastefnu, sbr. 4. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um fjármálaáætlun skv. 5. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, lögum um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki og lögum um fjármálafyrirtæki (nauðasamningagerð slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja).
Samþykkt sem lög.
Heilbrigðisráðherra
- Frumvarp til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni
Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 229. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum (heilbrigðisþjónusta yfir landamæri,EES-reglur)
Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 228. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, lögum um almannatryggingar og lögum um sjúkratryggingar (samningar sjúkratryggingastofnunar við stofnanir fyrir aldraða)
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, með síðari breytingum (lýðheilsusjóður)
Bíður 1. umræðu, 397. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 16/2001, um lækningatæki (gjaldtaka)
Ekki síðar en 27. janúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 112/2008, um sjúkratryggingar (greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 6/2002, um tóbaksvarnir
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til lyfjalaga
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra (endurskoðun ákvæða sem heyra undir heilbrigðisráðherra)
Verður ekki lagt fram nú. - Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára
Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 338. mál. - Tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2020
Ekki síðar en 31. mars. - Skýrsla heilbrigðisráðherra um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum vímuefnaneyslu
Ekki síðar en 29. febrúar.
Viðbót - Tillaga til þingsályktunar um lyfjastefnu.
Tillagan byggist á vinnu nefndar sem heilbrigðisráðherra skipaði til að semja drög að nýrri lyfjastefnu.
Ekki síðar en 27. janúar.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
- Frumvarp til laga um almannaheillasamtök
Áætlaður útbýtingardagur er 1. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald
Áætlaður útbýtingardagur er 19. janúar. - Frumvarp til laga um sölu ökutækja
Áætlaður útbýtingardagur er 1. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 3/2006, um ársreikninga
Áætlaður útbýtingardagur er 19. janúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, og lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög (einföldun)
Áætlaður útbýtingardagur er 1. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 73/2005, um skipan ferðamála (stefnumótun)
Verður lagt fram á 146. þingi. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, og lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög (kennitöluflakk)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar tónlistar á Íslandi
Lagt fram til kynningar í lok vorþings. - Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum á sviði orkumála (lagahreinsun)
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna orkuskipta í samgöngum
Ekki síðar en 31. mars. - Skýrsla ráðherra um raforkumálefni
Ekki síðar en 29. febrúar.
Viðbót - Tillaga til þingsályktunar um stefnu um nýfjárfestingar
Útbýtt 25. nóvember 2015, 372. mál.
Innanríkisráðherra
- Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til undirbúnings fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 64/2006, með síðari breytingum (áreiðanleikakannanir, undanþága frá áreiðanleikakönnun, eftirlit o.fl.)
Bíður 3. umræðu, 139. mál. - Frumvarp til laga um dómstóla og um breytingu á lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála, og lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála (millidómstig)
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 45/1996, um mannanöfn
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á þinglýsingalögum, nr. 39/1978, o.fl. (rafrænar þinglýsingar)
Verður lagt fram á 146. þingi. - Frumvarp til laga um útlendinga (heildarendurskoðun)
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um fullnustu refsinga (heildarendurskoðun)
Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd, 332. mál. - Frumvarp til laga um brottfall laga um þriðju kynslóð farsíma, nr. 8/2005
Bíður 2. umræðu, 265. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi)
Bíður 1. umræðu, 401. mál. - Frumvarp til laga um flutning verkefna til sýslumannsembætta
Verður lagt fram á 146. þingi. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 52/2006 (verkefni erlendis)
Samþykkt sem lög - Frumvarp til laga um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/2004, um siglingavernd, lögum nr. 60/1998, um loftferðir, vopnalögum, nr. 16/1998, og lögreglulögum, nr. 90/1996
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna flutnings netöryggissveitar til ríkislögreglustjóra
Verður ekki lagt fram. - Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987
Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, sjá einnig nr. 29 og 41 (þrjú frumvörp sameinuð), 375. mál. - Frumvarp til laga um neytendasamninga Bíður 1. umræðu, 402. mál.
- Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum um happdrætti og talnagetraunir (framlenging starfsleyfis)
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði)
Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, 263. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004 (skilgreining og álagning vatnsgjalds)
Bíður 1. umræðu, 400. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannréttindasáttmála Evrópu, nr. 62/1994, með síðari breytingum (15. samningsviðauki)
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 100/1952, um íslenskan ríkisborgararétt
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála (gjafsókn)
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/1991, um nauðungarsölu
Frumvarpið hefur verið sameinað frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um húsnæðismál sem er til umfjöllunar á þingi. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála (skilyrði fyrir beitingu úrræða skv. XI. kafla)
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um póstþjónustu
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um farmflutninga á landi
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um vopn, sprengiefni og skotelda
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 18/2013, um rannsókn samgönguslysa
Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, sjá einnig nr. 15 og 41 (þrjú frumvörp sameinuð), 375. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/2000, um lausafjárkaup, o.fl.
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir)
Verður ekki lagt fram nú. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/1989, um aðför, o.fl. (Höfðaborgarsamningur)
Verður lagt fram á 146. þingi. - Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (takmarkanir á erlendum lántökum)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996 (meðferð kvartana og kærumála vegna starfa lögreglu)
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2015–2026
Ekki síðar en 15. febrúar. - Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2015–2018
Áætlaður útbýtingardagur er 18. febrúar. - Tillaga til þingsályktunar um fjarskiptaáætlun 2015–2018
Ekki síðar en 29. febrúar. - Tillaga til þingsályktunar um fjarskiptaáætlun 2015–2026
Ekki síðar en 29. febrúar. - Skýrsla ráðherra til Alþingis um öryggismál
Ekki síðar en 15. mars. - Skýrsla ráðherra til Alþingis um stöðu og stefnumörkun í mannréttindamálum
Ekki síðar en 15. mars.
Viðbót - Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, siglingalögum og um breytingu á lögum um rannsókn samgönguslysa (EES-innleiðing), bandormur.
Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, sjá einnig nr. 15 og 29 (þrjú frumvörp sameinuð), 375. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/1998, um loftferðir.
Nauðsynlegar lagabreytingar svo hægt sé að innleiða reglugerð (ESB) um tilkynningarskyldu vegna flugslysa og flugatvika. EES-innleiðing.
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á siglingalögum, nr. 34/1985 (hækkun takmörkunarfjárhæða).
Hækkun takmörkunarfjárhæða sem er að finna í 2. og 3. mgr. 177. gr. siglingalaganna vegna breytinga sem orðið hafa á alþjóðasáttmála um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna (Convention on Limitation of Liability for Maritime Claims) sem Ísland er aðili að.
Ekki síðar en 15. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna.
Lögð er annars vegar til breyting vegna aðgangs Þjóðskrár Íslands að gögnum til ákvörðunar við mat á fasteignum og hins vegar er lögð til hækkun gjalds fyrir rafræn veðbandayfirlit. Lagafrumvarpið felur í sér breytingar á 22. og 24. gr. laga um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum. Í 22. gr. laganna er fjallað um heimildir Þjóðskrár Íslands til aðgangs að skattframtölum við ákvörðun matsverðs atvinnuhúsnæðis. Varðar breytingin að heimila Þjóðskrá aðgang að leigusamningum sem berast ríkisskattstjóra í því skyni að meta gangverð fasteignar út frá tekjuöflunarhæfni hennar. Í 24. gr. er fjallað um fjármögnun á starfsemi Þjóðskrár Íslands og er í frumvarpsdrögunum lagt til að gjald fyrir rafræn veðbandayfirlit verði hækkað úr 850 kr. í 1.050 kr.
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996 (menntun lögreglumanna).
Í frumvarpinu verði kveðið á um framtíðarfyrirkomulag lögreglumenntunar með hliðsjón af skýrslu starfshóps frá júní 2015.
Ekki síðar en 15. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (hryðjuverk).
Markmið frumvarpsins er að innleiða ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2178/2014 um erlenda bardagamenn, ásamt því að fullgilda samning Evrópuráðsins um varnir gegn hryðjuverkum frá árinu 2005 og viðbótarbókun við hann frá árinu 2015 sem tekur á fyrrnefndri ályktun öryggisráðsins.
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um gatnagerðargjald, nr. 153/2006, með síðari breytingum (B-gatnagerðargjald).
Samþykkt sem lög. - Skýrsla innanríkisráðherra um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum.
Útbýtt 24. september 2015. - Skýrsla innanríkisráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2013.
Útbýtt 6. október 2015.
Mennta- og menningamálaráðherra
- Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum (höfundaréttargjald á stafræna geymslumiðla)
Útbýting er áætluð fyrir 29. febrúar. Framlagning hefur tafist vegna vandkvæða við að meta kostnaðaráhrif frumvarpsins. - Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum (endurskoðun höfundalaga, einkaréttindi höfunda og samningskvaðir)
333. mál á Alþingi, útbýtt 10. nóvember 2015. Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd. - Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum (lenging verndartíma hljóðrita)
362. mál á Alþingi, útbýtt 24. nóvember 2015. Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd. - Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum (innleiðing tilskipunar, munaðarlaus verk)
334. mál á Alþingi, útbýtt 10. nóvember 2015. Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd. - Frumvarp til laga um sameiginlega umsýslu höfundaréttar og fleira (tilskipun 2014/26/ESB um starfshætti rétthafasamtaka og fjölsvæða leyfi fyrir afnot tónlistar á netinu)
Frumvarpið er í vinnslu og enn er stefnt að framlagningu þess á vorþingi. Tafir á upptöku gerðarinnar í EES-samninginn kunna hins vegar að leiða til frestunar á þeim áformum. - Endurskoðun laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna, nr. 21/1992 (ný heildarlög)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um tónlistarskóla (heildarlög, fjárstuðningur ríkisins)
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/2008, um grunnskóla (kæruleiðir, valdmörk og starfræksla frístundaheimila)
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/2008, um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla (endurskoðun)
Verður ekki lagt fram nú. - Frumvarp til laga um sjálfstætt starfandi grunnskóla
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (ESA, viðeigandi ráðstafanir)
Verður ekki lagt fram nú. Stefnt er að því að frumvarp verði lagt fram á 146. löggjafarþingi. - Frumvarp til sviðslistalaga
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 102/1980, um Grænlandssjóð
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um bókmenntasjóð (greiðslur fyrir afnot á bókasöfnum)
Hætt er við framlagningu frumvarpsins. Í þess stað munu ráðherra og Rithöfundasamband Íslands undirrita viljayfirlýsingu um bókasafnasjóð höfunda. - Skýrsla mennta- og menningarmálaráðherra um framkvæmd skólastarfs í framhaldsskólum skólaárin 2008–2009 til 2012–2013
Kynning skýrslunnar er áætluð í janúar.
Viðbót - Frumvarp til laga um styrki vegna sýninga á kvikmyndum á íslensku í kvikmyndahúsum hér á landi (miðastyrkir).
369. mál á Alþingi, útbýtt 25. nóvember 2015. Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir, lögum nr. 55/1998, um sjávarafurðir, og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (eftirlit, starfsleyfi, viðurlög, EES-samningurinn)
Ekki síðar en 15. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (búvörusamningar)
Áætlaður útbýtingardagur er 14. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á búnaðarlögum, nr. 70/1998 (búvörusamningar)
Áætlaður útbýtingardagur er 14. mars 2016. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 89/1966, um Framleiðnisjóð landbúnaðarins (endurskoðun)
Verður ekki lagt fram nú. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar (vigtun sjávarafla, afladagbók)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um haf- og vatnarannsóknir (heildarlög)
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar (haf- og vatnarannsóknir sameinaðar í einni stofnun)
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands (vinnsla þangs og þara)
Ekki síðar en 29. apríl. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 79/2005, um uppboðsmarkaði sjávarafla
Ekki síðar en 29. apríl. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, nr. 37/1992
Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd, 385. mál. - Tillaga til þingsályktunar um áætlun til sex ára um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla (5,3% aflaheimilda til sérstakra ráðstafana á sviði byggða- og atvinnumála)
Ekki síðar en 29. apríl. - Skýrsla sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um starfsemi Byggðastofnunar og framvindu byggðaáætlunar
Ekki síðar en 31. mars.
Umhverfis- og auðlindaráðherra
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 103/2006, um landmælingar og grunnkortagerð (afmörkun á nákvæmni landupplýsinga)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (heildarlög)
Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, 133. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, með síðari breytingum (almannaréttur og fleiri ákvæði)
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (grenndarkynning)
Bíður 2. umræðu, 225. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur (fullgilding Kartagena-bókunar, verkaskipting Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar)
Verður ekki lagt fram nú. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð (breyting á stjórnfyrirkomulagi og aðrar breytingar)
Ekki síðar en 1. mars. - Frumvarp til laga um timbur og timburvörur (heildarlög)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs (innleiðingar Evrópugerða, stjórnvaldssektir o.fl.)
Ekki síðar en 29. febrúar. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 9/2009, um uppbyggingu og rekstur fráveitna
Bíður 1. umræðu, 404. mál. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga, og lögum nr. 75/2000, um brunavarnir
Ekki síðar en 1. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur og lögum um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu (sameining stofnana)
Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, 504. mál. - Frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir (hlutverk eftirlitsaðila, stjórnvaldssektir, umhverfisupplýsingar o.fl.)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um skipulag hafs og stranda (heildarlög)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum, m.a. lögum nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda (upptaka refsiákvæða vegna tiltekinna brota sem varða umhverfið)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um skógrækt (heildarlög)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um landgræðslu (heildarlög)
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015–2026
Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, 101. mál. - Tillaga til þingsályktunar um landsáætlun um uppbyggingu innviða
Ekki síðar en 31. mars.
Viðbót - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna nýrrar skógræktarstofnunar (sameining stofnana).
Með frumvarpinu er lagt til að sameina Skógrækt ríkisins og landshlutaverkefni í skógrækt í nýja stofnun, Skógræktina. Um er að ræða bandorm vegna þeirrar sameiningar. Heildarendurskoðun á lögum um skógrækt mun halda áfram samhliða sameiningunni.
Ekki síðar en 1. mars.
Utanríkisráðherra
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands o.fl. (skipulag)
Samþykkt sem lög. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið (uppbyggingarsjóður EES)
Ekki síðar en 31. mars. - Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 38/2010, um Íslandsstofu
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland
Til umfjöllunar í utanríkismálanefnd, 327. mál. - Tillaga til þingsályktunar um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2017–2021
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum vegna ársins 2016
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2016
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir, vottun) við EES-samninginn
Samþykkt á Alþingi. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn
Samþykkt á Alþingi. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn
Samþykkt á Alþingi. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn
Samþykkt á Alþingi. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2015 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) við EES-samninginn
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn
Verður ekki lagt fram (innleiðing fór fram með reglugerð). - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn
Bíður fyrri umræðu, 430. mál. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn
Bíður fyrri umræðu, 431. mál. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn
Samþykkt á Alþingi. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn
Samþykkt á Alþingi. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 143/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn
Samþykkt á Alþingi. - Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu breytinga á Rómarsamþykktinni um Alþjóðlega sakamáladómstólinn varðandi glæpi gegn friði
Ekki síðar en 31. mars. - Skýrsla utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkismál
Verður rædd 17. mars.
Viðbót - Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu bókunar um aðild Lýðveldisins Gvatemala að fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Mið-Ameríkuríkjanna
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu samnings Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur.
Um er að ræða samning Íslands og ESB um frekari gagnkvæmar ívilnanir í viðskiptum með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 3 við sama samning.
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 188/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn.
Bíður fyrri umræðu, 432. mál. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.
Bíður fyrri umræðu, 433. mál. - Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn
Bíður fyrri umræðu, 434. mál. - Frumvarp til laga um Háskólastofnun Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
Með frumvarpinu verður sett á stofn á Íslandi sérstök stofnun Háskóla Sameinuðu þjóðanna, sem þeir fjórir skólar Sameinuðu þjóðanna sem eru á Íslandi (Jarðhitaskólinn, Sjávarútvegsskólinn, Landgræðsluskólinn og Jafnréttisskólinn) munu falla undir. Slík stofnun er forsenda þess að skólarnir fái að starfa áfram undir merkjum Sameinuðu þjóðanna. Í frumvarpinu verður heimild til fullgildingar tveggja samninga við Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Tokyo um framangreint, auk nauðsynlegra lagabreytinga sem tengjast m.a. friðhelgi og réttarstöðu stofnunarinnar, starfsmannamálum, skattamálum o.fl.
Ekki síðar en 31. mars. - Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu stofnsamnings um Innviðafjárfestingabanka Asíu.
Bíður fyrri umræðu, 436. mál.